Monday, June 25, 2018

Á

17. júní komu Jói og strákarnir og við fórum á hátíðina í Mosó:-)
Það var rigning og sól til skiptis, Gunnar og Birgir fóru í hoppukastala, fengu rellur og popp og við gengum aðeins um svæðið. Fórum svo heim, pöntuðum Nings og áttum kózý samverustund fram á kvöld:-)

Á mánudeginum var gott veður framan af degi og ég notaði tækifærið til að fara í smá gönguferð í Úlfarsárfelli:-)

Leti og rólegheit heima á þriðjudag...

Á miðvikudaginn var flott veður, sól, hiti og smá vindur og um að gera að nota daginn í útiveru og sólbað:-)
Ég fór í bæjarferð, gekk Laugaveginn og niður á Ingólfstorg sem er nú búið að breyta í HM torg á meðan keppnin er í gangi. Það er búið að setja bekki og risastóran skjá og sýnt er beint frá fótboltaleikunum..
Ég fékk mér kaffi, settist niður, horfði á fótboltaleik ásamt fjölda fólks og baðaði mig í sólinni:-)
Gott og notalegt að njóta sólarinnar og ylsins í rólegheitum..
Sat þarna í góða stund og gekk svo aðeins meira um bæinn, áður en ég hélt heim á leið:-)

Á fimmtudagskvöld tók ég þátt í Miðnæturhlaupi Suzuki í Laugardalnum:-)
Hef ekki tekið þátt í mörg ár og komin tími til að fara aftur í 5 km hlaupið..
Fyrr um daginn var rigning og rok, en það stytti upp og hélst frekar þurrt á meðan hlaupi stóð, komu smá skúrir inn á milli, svo þetta var í lagi..
Ég var bara frekar ánægð með mig þegar ég kom í mark og var bara nokkuð hissa hvað ég gat hlaupið dálítið og skokkað þrátt fyrir mjög litla æfingu:-)
Kom í mark, þreytt og sveitt á mínum venjulega tíma sem er um 45 mínútur...

Á föstudaginn hitti ég Heiði vinkonu, við fórum í miðbæinn, settumst inn á kaffihús, fengum okkur að borða og töluðum heilmikið:-)
Sátum þarna í tvo tíma, gengum svo aðeins um bæinn, settumst svo inná annað kaffihús og fengum okkur kaffi og köku og sátum í góðan hálftíma áður en við fórum heim..
Þegar ég kom heim fórum við Gunni í smá göngutúr um hverfið, lögðumst svo í sófann og gláptum á sjónvarpið:-)
Fín og skemmtileg samverustund í góðum félagsskap þann daginn:-)

Á laugardaginn fór ég í heimsókn til Ágústu frænku:-)
Hún og krakkarnir eru flutt heim og búa í Hafnarfirði..
Ég stoppaði í c.a. 3 tíma og við töluðum heilmikið um heima og geima og áttum góða samverustund:-)

Í gær kíkti ég til mömmu, kom heim og fór í sundlaugina hér við hliðina, lá í nuddpottinum og gufunni til að ná úr mér mestu harðsperrunum og vöðvabólgunni:-)
Mjög notalegt og ég á pottþétt eftir að fara aftur í pottinn í sumar...
Á sundinu loknu fórum við Gunni á American Style og fengum okkur djústeiktan fisk og franskar og svo var rólegheit fram á kvöld:-)

Nýjar myndir má sjá á myndasíðunni hér til hliðar....

Þangað til næst.. hafið það sem best:-)

Saturday, June 16, 2018

Gott

að vera komin í sumarfrí:-)
Hitti Heiði vinkonu þann 17. maí á kaffihúsi, áttum fína stund saman:-)

Gunnar og Birgir komu í næturpössun föstudagkvöldið 1. júní á meðan Jói fór í afmæli til vinar síns:-)
Birgir var að gista í fyrsta skipti, en það gekk allt að óskum, tók dálitla stund að lesa bækur og spjalla og svo sofnaði hann enda duglegur og flottur strákur:-)
Gunnar fékk að vaka lengur og horfa á sjónvarpið, síðan las ég fyrir hann, það er fastur liður þegar hann gistir að ég lesi sögu og svo fór hann að sofa, stóri og flotti drengurinn:-)

Mánudaginn 4. júní fórum við með allt miðstigið (5. 6. 7.) bekkur í ratleik í Elliðaárdalnum. Vorum þar frá c.a. 9:00- 13:00 og fengum sem betur fer gott veður, sól og lítinn vind:-)
Fórum í þrautir og leiki, grilluðum pylsur og höfðum gaman úti í góða veðrinu:-)

Síðasti vinnudagurinn hjá mér þessa önnina var fimmtudagurinn 7. júní...
Laugardaginn 9. júní fórum ég, Jói og Gunni á bíómyndina um Han Solo, ágætis ræma þar á ferð:-)

Fyrsta vikan í sumarfríinu fór í afslöppun, sjónvarpsgláp, heimsóknir til mömmu, heimsóknir til  Jóa og strákanna,  tannlæknatíma, klippingu, búðarráp og gönguferðir um hverfið, hef ekki komist í fjallgöngu ennþá en kemst vonandi í sumar ef veður leyfir:-)

Í gær fór ég til mömmu og kíkti svo í Ásgarðinn. Jói fór og náði í Gunnar á íþróttanámskeiðið sem er í hverfinu en ég fór og náði í Birgi á leikskólann sem er rétt hjá Jóa. Það var skemmtileg upplifun, gaman að sjá hann með krökkunum úti að leika sér í góða veðrinu, (já við fengum sól í gær)  og svo löbbuðum við heim í pabbahús:-)
Gunnar og Jói komu rétt á eftir, ég stoppaði í kaffi og fór svo heim...

Í dag er stóratburður hjá íslensku þjóðinni, allt samfélagið á hliðinni, fólk frestar giftingum og jarðarförum og einhverjar búðir eru lokaðar, fólk er klikk:-)
En íslenska karlalandsliðið er semsagt að spila í fyrsta skipti í HM í fótbolta  sem er bara frábært, fyrsti leikurinn er á eftir og ég segi bara áfram Ísland:-)

Næstkomandi fimmtudagskvöld ætla ég að taka þátt í miðnæturhlaupi Suzuki sem fer fram í Laugardalnum, klukkan 21:20. Fer 5 km sniglaskokk þetta árið. Hef farið einu sinni áður í þetta hlaup og tilvalið til að fara aftur núna þar sem ég þarf ekki að vakna snemma daginn eftir:-) 

Á föstudaginn ætla ég svo að hitta Heiði vinkonu um eittleytið og við ætlum á kaffihús og göngferð eða bæjarrölt ef veður leyfir:-)

Já, svona er nú lífið í sveitinni, rólegheit og sumarfrí...