Sunday, March 11, 2018

Eitt og annað


Gunnar varð 8. ára þann 11. febrúar og fórum við í fínustu pizzuveislu í Drekavoginum.
Það var alveg brjálað veður, hef ekki keyrt í öðru eins veðri í mörg ár, blindbylur, rok og fáir á ferli, en þetta hafðist nú allt saman og allir komust heilir á húfi í afmælið:-) 

15. og 16. febrúar var ég í vetrarfríi, notaði það í læknaheimsóknir, hitti Heiði vinkonu mína á kaffihúsi og fór í rólegt og fínt kórpartý, söngur, spjall og matur:-)

Jói seldi Drekavoginn og keypti sér hús í Ásgarðinum:-)
Laugardaginn 24. febrúar  voru strákarnir hjá okkur á meðan Jói var að stússast í nýja húsinu og áttum við góðan dag saman, horfðum á teiknimyndir og fórum í skrímslaleik:-)




Helgina 2.- 4. mars fór ég í æfingabúðir og árshátíð með kórnum, mjög skemmtileg og flott helgi:-)
Stelpurnar sóttu mig um sexleytið á föstudeginum,  við keyrðum á Laugarvatn, komum okkur fyrir á herbergjunum, margir voru einir í herbergi og þ.á.m. ég, fórum á æfingu klukkan 20:00-22:30. Þá tók við æfing á skemmtiatriðinu, eldhúspartý, söngur, hlátur og spjall. Fór svo að sofa um eittleytið:-)

Næsta æfing var um 9:30 á laugardagsmorgun og stóð til 17:00, með matar og kaffihléi. Eftir það var hlé til 19:30, en þá byrjaði árshátíðin. Fengum góðan mat, þríréttað, rækjur,  innbakað lambalæri með öllu tilheyrandi og súkkulaðimús og kaffi:-)
Skemmtiatriðin tókust vel og mikið hlegið:  Altinn tók lagið "I want to break free" með Queen, sópraninn var með Evróvisionþema og strákarnir tóku lagið um Gvend á eyrinni:-)


Eftir skemmtiatriðin, matinn og kaffið um klukkan 23.00 tók við dansiball af bestu gerð, DJ Mummi var með plötuspilara og fullt af plötum og dillaði fólk sér og dansaði í c.a tvo tíma:-)  Þá róaðist stemmingin, gítarinn var tekin fram og söngurinn tók við:-)
Ég fór í rúmið um hálfþrjú leytið, þreytt, ánægð og glöð með frábæra skemmtun, dansi,  glensi og samveru í góðra vina hópi:-)
Vaknaði um 10.00 á sunnudagsmorgni, fékk mér kaffi og svo keyrðum við í bæinn rúmlega 11.00. Kom heim, lagði mig aðeins, var pínu þunn:-)  og fór svo til Jóa seinnipartinn að hjálpa til við flutninga:-)

Í gær fór ég í Ásgarðinn til að líta eftir strákunum á meðan Jói var að útrétta, setja upp ljósin, tengja uppþvottavélina og fleira sem þarf að gera eftir flutninga:-)

Læt þetta nægja í bili...
Sandra