Sunday, December 21, 2025

Dásamlegt

 að vera komin í jólafrí😃. 

Síðasti vinnudagur var föstudagurinn 19. des og þá var jólaball, litlu jól, sparinesti og verkefni í listasmiðju, salnum og íþróttahúsinu og svo vann ég í frístundinni til 16:00  var að vinna af mér vaktir þar milli jóla og nýjárs. Mæti svo aftur í vinnu 5. jan.. Þetta er aðeins lengra frí en áður þar sem núna eru Stórubrandajól og því lítið um virka vinnudaga svona almennt þessi jólin...

Það er búið að vera þónokkuð um að vera hjá mér síðustu vikur...

Fór í klippingu 14. nóv og hitti vinkonu mína laugardaginn 15. nóv þar sem við áttum kózýkvöld, fengum okkur Nings og horfðum á jólamynd😉

Sunnudaginn 23. nóv var sameiginleg kóræfing með tveim öðrum kórum og laugardaginn 29. nóv sungum við með karlakór og kvennakór á sameiginlegum tónleikum í Hlégarði sem tókst vel og gaman að prófa svona samsöng með öðrum kórum. Hver kór söng 5-6 lög og svo sungum við 3 lög saman.😊. 

Daginn eftir var svo komið að fyrsta jólasöngnum sem var klukkutíma prógramm í Ikea sem tókst vel...

Föstudaginn 5. des var jólahlaðborð hjá starfsmönnum í skólanum. Það var haldið á veitingastaðum Haust og vorum við í sérsal á 2. hæð. Ég söng þar eitt jólalag ásamt 4 öðrum konum úr vinnunni og tókst það bara ljómandi vel, enda voru  æfingar á hverjum degi þá viku😁 og kvöldið var fínt, góð samverustund, ágæts matur og eftirréttir,  happdrætti og skemmtiatriði og góð mæting.. 

Vikuna á undan var líka skemmtilegur leynivinaleikur í vinnunni þar sem ég fékk flotta kaffibolla, nammi og krúttlega glerkúlu með glimmeri og piparkökukalli innaní..

Laugardaginn 6. des vorum við að syngja í Mosó, fyrst á opnun jólaskógarins hjá Skógræktinni og svo á elliheimilinu.. og daginn eftir var hálftíma söngur í Smáralind.. svo ég var orðin pínu þreytt eftir þá helgi, en röddin samt sem betur fer í góðu standi😎

Föstudaginn12. des var svo jólahlaðborð fyrir starfsfólkið í frístundinni og var það haldið á vinnustaðnum. Það var fínasta kvöld og góð samverustund,  fengum ágætis mat, kökur og nammi, fórum í skemmtilegan spurningaleik og fengum jólagjöf😊 

Laugardaginn 13. hitti ég svo vinkonur mínar í hádeginu á jólahlaðborði á veitingastaðnum Vox, við borðuðum góðan mat og eftirrétti, spjölluðum, tókum myndir,  skiptumst á jólagjöfum og áttum góða samverustund.. 😀

Eftir hittinginn fór ég í fínasta afmæliskaffi til mömmu, var fyrst á staðinn og svo týndust ættingjarnir inn hver af öðrum😉

 Þriðjudagurinn 16. des var frekar langur, var að vinna til 16:00, þar af var jólakaffi í vinnunni þar sem starfsfólkið kom saman í salnum, átti góða samverustund, fékk kaffi og fínt meðlæti og jólagjafirnar voru afhentar...😊

Eftir vinnu fór ég í Mjóddina þar sem við sungum síðasta jólaprógrammið á þessu ári, þetta var klukkutíma söngur frá 17:00-18:00 og kom ég heim um 18:30, frekar lúin eftir langan dag...

Við mosóbúarnir erum búin að skreyta, setja upp ljósaseríur og jólatréð og allir pakkarnir eru komnir í hús og liggja innpakkaðir undir jólatrénu😌..

Veðrið hefur verið frekar gott undanfarið, það kom smá snjór, hálka og frost í nokkra daga en annars hefur verið ýmist rigning, vindur, asahláka, logn og hitastig frá frostmarki upp í 5-6 stiga hita.. Nú er spáin þannig að á aðfangadag er spáð grenjandi rigningu, roki og 10 stiga hita..😦 

Jói og Birgir komu í heimsókn í gær og Birgir teiknaði fallega jólamynd fyrir okkur sem fór upp á vegg..

Í dag þvoði ég bílinn í góða veðrinu og fór í gönguferð og á morgun ætlum við að klára matarinnkaupin... Klipping og rólegheit á Þorláksmessu og á aðfangadag verður hamborgarhryggur og meðlæti og pakkastuð með Gunna, mömmu, Jóa, Gunnari og Birgi  hér í Mosó😀

Nóg í bili, óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári..

Jólakveðja, Sandra í jólafríi...