Sunday, April 16, 2017

gott

að vera í páskafríi:-)

Hef tekið því rólega, sofið,  glápt á sjónvarpið, farið í gönguferðir, hangið í tölvunni, tekið til og farið í búðarráp, og svo komu Jói og co í mat áðan:-)

Er búin að skrá mig í 10 km hlaupið í RVK maraþoni í ágúst, var eitthvað löt síðasta sumar og fór ekki þá, en þetta er bara svo gaman og mikil stemming að taka þátt:-)

Annars er lítið að frétta, fór í vídjókvöld til Heiðar vinkonu um daginn.
Gunni átti afmæli 12. apríl og Jói, Lára og strákarnir komu um kvöldið og við fengum okkur pizzu í tilefni dagsins;-)

Það er eitt og annað á döfinni næstu vikur; ég og Heiður fengum gjafabréf í nuddtíma og dekur frá vinnunni í 40 ára afmælisgjöf og við erum búnar að plana dekurdag  22. apríl, ég ætla að hitta Hadda pabba og Helgu þann 1. maí því þau eru að koma til landsins, það er óvissuferð með vinnunni 5. maí og Jói á 35 ára afmæli þann 7. maí :-)

Læt þetta nægja í bili, óska ykkur gleðilegrar hátíðar og passið ykkur á páskaeggjunum;-)