Saturday, February 20, 2021

Jamm

 héldum upp á áramótin í Ásgarðinum með Jóa, Katrínu og strákunum, fengum flotta Wellingtonsteik og meðlæti, horfðum á skaupið og skutum upp nokkrum flugeldum:-)

Reglur um skólastarf voru rýmkaðar eftir áramót svo nú mega nemendur og starfsfólk fara á milli rýma, börn í 1.-7. bekk eru saman í frímó, allir fara í mat og einhverjar nemendaferðir eru leyfðar...

Ennþá er grímuskylda og 20 manna samkomutakmarkanir hjá fullorðnum, gestakomur í skólann eru takmarkaðar, allir eiga að spritta hendurnar,  það er sótthreinsað á milli hópa og flestallir fundir og viðtöl eru í gegnum tölvuna..

Þessar reglur í skólastarfi gilda til 28. febrúar..

Innanlandssmitum hefur fækkað mjög mikið og undanfarnar vikur hafa greinst 0-2 smit á dag..

Bólusetningar eru hafnar, reglur á landamærum hafa verið hertar og búið er að létta aðeins á takmörkunum innanlands;  sundstaðir, líkamsræktarstöðvar, veitingahús, barir, leikhús og bíóhús mega hafa opið með ákveðnum skilyrðum. Einnig eru íþróttakeppnir og æfingar leyfðar með takmörkunum hjá börnum og fullorðum..

Ég er samt ennþá í kúlunni minni, fer á kóræfingar í tölvunni og fer hvorki í sund, leikfimi, bíó eða út að borða, hef bara ekki áhuga á því eins og er:-)

Fór til vinkonu minnar um daginn, við áttum góða samverustund, kjöftuðum og horfum á vidjómynd..

Hef líka farið aðeins í búðarráp í Costco, Kringlunni og Rúmfó og í klippingu...

Gunnar varð 11. ára þann 11. febrúar 2021:- )  

og var haldið upp á afmælið  í Ásgarðinum 10. feb með pizzuveislu og stórri súkkulaðiköku.. Þar voru samankomin; Jói, Katrín, Gunnar, Birgir, ég, Gunni, mamma, Björn, Heiða, Alexander og Ársól..

Já, svona er nú staðan í  sveitinni, er núna í löngu helgarfríi og tek því rólega:-)