Saturday, August 20, 2016

jæja

þá er fyrsta vinnuvikan eftir sumarfrí liðin. Pínu erfitt að koma sér af stað fyrsta daginn en það gekk allt saman:-)
Breytti aðeins til í vetur, er að vinna í eldhúsinu og svo kennari inni á deildum seinnipartinn, það er bara fín tilbreyting og ég er sátt við þessa tilhögun;-)

Við Jói fórum á tónleika með stórhljómsveitinni MUSE í Laugardagshöllinni þann 6. ágúst.
Flottir og töff tónleikar, frábær stemming,  rokk og ról, hiti og sviti, 10.000 manns í höllinni og við dönsuðum næstum því af okkur skóna, frábært kvöld sem lifir lengi í minningunni:-)

Gunnar Aðalsteinn gisti hérna síðustu helgi, við horfðum á teiknimyndina Frummaðurinn á laugardagskvöldinu og kíktum svo niður á Reykjavíkurhöfn á sunnudeginum í frekar leiðinlegu veðri, vindur og rigning. Gunnari langði að prófa að veiða við höfnina svo við dorguðum smástund en fengum ekki einu sinni marhnút:-)  Fórum svo að borða, komum hér heim aftur og horfðum á barnaefni og síðan keyrði ég hann heim til sín seinnipartinn..
Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, nú er bara komið að því að Gunnar byrjar í 1. bekk í Breiðagerðisskóla á mánudaginn:-)

Næsta laugardag verður nóg um að vera; syng með kórnum mínum í hádeginu á bæjarhátíðinni" Í túninu heima" sem er haldin árlega síðustu helgina í ágúst hér í Mosó og fer svo um kaffileytið í afmæli hjá Heiði vinkonu:-)

Annars lítið að frétta, er að fara í gönguferð og heita pottinn í góða veðrinu, sumar og sól hér í sveitinni í dag;-)

Eigið góða helgi og njótið lífsins....

Monday, August 01, 2016

sumarfrí

Fór fimmtudagskvöldið 14.júlí  út að borða á Eldsmiðjunni  með Jóa og Gunna. Fengum ljúffenga pizzu og hvítlauksbrauð og svo kom Jói í smá kvöldkaffi hér í Mosó..

Birgir Hafsteinn varð 1. árs þann 16. júlí og var því haldin fínasta garðafmælisveisla í Hæðargarðinum, grill, kaka, kaffi og fullt af gestum í ágætis veðri:-)

Þriðjudaginn 19. júlí kíktum við í smá heimsókn í bústaðinn á Þingvöllum þar sem samankomin voru m.a. Jói, Lára, Gunnar, Birgir, Jón, Sif og fleiri gestir. Gunni, Jói og ég fórum með Gunnari Aðalsteini niður að vatninu til að renna fyrir fisk og þar veiddi Gunnar á veiðistöng sinn fyrsta fisk, stóra og flotta bleiku..og hann varð stoltur og glaður með fiskinn:-)

Mosóbúarnir fóru í skemmtilega og pínu erfiða gönguferð á Nesjavöllum þann 26. júlí í glaða sólskini og frábæru veðri:-)  Gengum tæplega 5 km leið í átt að Skógarhóli, hraun, brött brekka, skógur og grasi gróinn göngustígur, bara gaman:-)

Laugardagskvöldið 30. júlí fór ég í smá partý til Ágústu og Brynju:-) Ég mætti um níu leytið og stuttu seinna komu tveir gestir í viðbót. Það var mikið hlegið, spjallað, spaugað, dansað og sungið, mikið fjör, píuskrækir og gleði.  Ég fór heim um hálfeitt með harðsperrur í maganum af hlátri:-)

Í gær fórum við Gunni í fínan bíltúr sem tók um fimm tíma, keyrðum til Þingvalla, fórum Uxahryggi, keyrðum gamlan torfæruveg til Skorradals, kíktum á eyðibýlið Vatnsholt í Skorradal og fórum Hvalfjörðinn heim:-)

Á laugardagskvöldið fer ég með Jóa á tónleika með hljómsveitinni Muse í Laugardalshöll, hlakka mikið til:-)

Annars er bara rólegt hér í sveitinni, það er búið að vera flott veður undanfarna daga, sól, stundum smá vindur og 15-20 stiga hiti:-)
Hef farið dálítið í sund, heita pottinn, gufu og sólbað á sundlaugarbakkanum, gönguferðir og afslöppun;-)
Fór í bíó á nýjustu Star trek myndina, og stefni á að fara í vikunni á Jason Bourne myndina:-)

Á líka eftir að fara með bílinn í skoðun og svo er tannlæknatími í næstu viku.. um að gera að nota líka fríið í svona útréttingar þegar maður hefur nógan tíma...

Komið gott í bili, njótið sumarsins og eigið góðar stundir:-)