Saturday, June 27, 2026

yndislegt

 að vera komin í sumarfrí😎, ég hef nú tekið því frekar rólega þessar tvær vikur sem ég hef verið í fríi og reynt að hvíla mig dálítið. Ég hitti vinkonur mínar, Valdísi og Heiði laugardaginn 13. júní og við fórum út að borða á Jómfrúnni sem er ágætis staður og áttum góða stund saman. Ég hef líka farið í sund og gönguferðir,  matarboð til mömmu og búðarráp 😊.. Svo fór ég í tannrótartöku 19. júní og er svona að jafna mig á því, sárið grær vel og saumarnir voru teknir í gær...

Gunnar okkar kom mánudagskvöldið 22. júní og gisti hér þar sem hann var að fara til Svíþjóðar á stórt fótboltamót um nóttina og Gunni skutlaði honum svo upp á völl..😉

 Fimmtudaginn 4. júní var lokaslútt hjá frístundinni til að loka vetrarstarfinu. Við hittumst í Egilshöll kl. 18:00, fórum í keilu og það var mikið hlegið og fíflast og ýmis tilþrif með kúluköstin og að leik loknum fórum við að borða á Shake and pizza.. Vorum þarna til rúmlega 21:00 og áttum góða og skemmtilega stund saman😃

Föstudaginn 5. júni var svo komið að vorferðinni með skólanum.. Það var kennsla til tæplega 14:00 og svo var lagt af stað með rútu um 14:15 frá skólanum.. Við keyrðum til Stokkeyrar þar sem hluti hópsins fór í kajakferð, nokkrir gengu yfir á Eyrarbakka og hluti hópsins, þ.á.m.ég fóru í Veiðisafnið á Stokkseyri. Þetta er flott safn með  allskonar uppstoppuðum dýrum, villidýum, fuglum, íslenskum og erlendum og ég mæli með að þið kíkið þangað....

Við vorum á Stokkseyri í c.a. 3 tíma og keyrðum svo yfir á Eyrarbakka þar sem fórum í bragga sem var upphaflega gömul kartöflugeymsla en er búið að gera flott upp og er notað sem salur núna.. Þar fengum við pizzur og snakk og áttum skemmtilega stund saman, það var sungið, hlegið, spjallað, borðað og dansað.. Vorum svo kominn aftur í bæinn um kl.22:00, þreytt og glöð eftir langan, góðan og viðburðaríkan dag😀

jamm, svona er lífið hér í sveitinni.. Eigið góða daga og farið varlega í umferðinni...