Saturday, April 07, 2018

Ágætis

páskafrí að baki.
Jói, Gunnar, Birgir, Arndís og Hákon komu í mat laugardaginn 24. mars:-)
Rólegheit á pálmasunnudag:-)
Var að vinna í frístund frá 13:00-16:30 á mánudeginum.
Fór með Heiði vinkonu minni út að borða og í bíó á þriðjudeginum:-).
Fór til tannsa á miðvikudagsmorgun og svo rólegheit og TVgláp restina af deginum.
Kíkti í kaffi til múttu á skírdag.
Gunnar kom í heimsókn og gistingu á föstudagskvöldinu, áttum kózý stund og  horfðum á skemmtilega mynd:-)
Fór út að borða með mömmu á laugardeginum á Gamla kaffihúsinu, fengum okkur ágætis nautasteik og meðlæti:-)
Vídjógláp og leti á páskadag:-)
Jói bauð okkur í mat á mánudeginum, fínasti matur, kjúklingur og allskonar meðlæti, góð samverustund með fullt af fólki; Mosóbúar, Jói og strákarnir, Arndís, Villi og Brett vinur Jóa:-)

Jamm, svona var nú páskafríið þetta árið:-)