er
í síðasta deginum af vetrarfríinu og er sérstaklega fegin að vera í fríi í dag þar sem það hefur snjóað mikið í nótt og morgun og það á að halda áfram að snjóa., færðin er erfið og umferðin í rugli😞
Það gengur vel í vinnunni og rútínan er í fullum gangi, vinna, fundir, kóræfingar, partý og hittingar:-)
Hef dundað við ýmislegt undanfarið, s.s.kíkt í Costco, skroppið til tannsa og í klippingu, farið á kórstjórnarfundi og skólaráðsfund og fínasta stórafmæli hjá kunningakonu minni 😄.
Laugardagskvöldið 27. september tók ég þátt í mjög skemmtilegum viðburði. Þá söng ég með kórfélögum í 60 ára brúðkaupsafmæli hjá yndislegu hjónum sem eru í kórnum og þau sungu að sjálfsögðu með okkur, og svo vorum við áfram í partýinu, það var söngur, dans, spurningakeppni, myndataka, glens og gleði fram eftir kvöldi, mjög gaman saman 😍
Laugardaginn 11. október átti ég kózýkvöld með vinkonu minni, við pöntuðum pizzu og horfðum á mynd..😊
Laugardaginn 4. október fórum við Gunni á kvikmyndina One Battle After Another, mjög góð og töff mynd sem ég mæli með😉
Það er nóg framundan og komið þónokkuð af viðburðum á dagatalið næstu tvo mánuði, m.a. jólahlaðborð með vinnunni og saumó, jólasöngur víðs vegar um bæinn, afmæli og samsöngur með öðrum kórum😄
Nóg í bili, farið varlega og hafið það sem best..

<< Home