Tuesday, April 22, 2014

Páskar

átti fínasta páskafrí, afslöppun, vídjógláp, tölvuhangs, bæjarferðir og samverustundir með fjölskyldu og vinum allt í bland...
Að kvöldi skírdags fór ég í heimsókn til Heiðar vinkonu, við fengum okkur pizzu og snakk, kjöftuðum og horfðum á vídjómyndir:-)
Föstudagurinn var letidagur, tölvuhangs, tiltekt, útsofelsi og sjónvarpsgláp;-)
Laugardagurinn fór aðallega í búðarferðir, vidjógláp og heimsókn til múttu:-)
Seinnipartinn á sunnudaginn komu Jói, Lára og Gunnar í heimsókn, við fengum lambalæri, sætar kartöflur og meðlæti, og Jói minn setti tölvuna mína upp aftur með nýju stýrikerfi:-)
Í hádeginu í gær náði ég í Gunnar Aðalstein og við fórum í bíó kl 13:10, sáum teiknimyndina Ríó 2, skemmtileg mynd sem ég mæli með:-)
Þegar myndin var búin fórum við og náðum okkur í pizzu og fórum svo í heimsókn til mömmu:-)
Um fimmleytið keyrði ég Gunnari heim til sín, fór heim, lagði mig og tók því rólega um kvöldið:-)

Já, svona var nú páskafríið þetta árið:-)


Sunday, April 13, 2014

átti

góðar og skemmtilegar samverustundir með fjölskyldunni í gær:-)
Ég, Gunni,  Lára og Gunnar Aðalsteinn fórum í hádeginu í Kramhúsið að horfa á Gunnar frænda dansa í nemendasýningu, þar sem hann hefur verið á dansnámskeiði í vetur:-) það var skemmtilegt að sjá þessi duglegu kríli dansa og syngja:-)
Eftir sýningu fórum við á Grænan kost og fengum okkur súpu og brauð.
Í þessari bæjarferð sáum við fullt af krökkum að dimmitera í allskonar búningum m.a. Mikka mús,Mínu mús, risaeðlur og Aulinn ég:-)

Eftir bæjarferð fórum við aðeins heim en um kl. 17:30 náðum við í Jóa, Láru og Gunnar litla og fórum á Steikhúsið í Trygvagötu til að halda upp á 55 ára afmæli Gunna:-)
Ég mæli með þessu veitingahúsi, góður matur, ágætt að fara með börn, fínn barnamatseðill, góður matur, fín þjónusta, ágætis verð á matnum, flottur staður og meira að segja útvarp á klósettinu:-)
Við fengum ljúffengar nauta og lambasteikur, kartöflur, grænmeti og sósu, góðan ís, ávexti, kökur og kaffi:-)

Sátum þarna í kózý fíling í c.a. 2 tíma, fórum svo í bíltúr og enduðum kvöldið í Hæðargarðinum þar sem við horfum á góða vídjómynd, The secret life of Walter Mitty:-)

læt þetta nægja í bili, eigið góða og stutta vinnuviku og njótið páskafrísins sem er alveg að koma:-)
Sandra lata..