Sunday, November 01, 2026

ég

 fór með nokkrum vinkonum í bíó 19. september. Við hittumst í Smáralind, fengum okkur að borða og fórum svo á myndina: Practical magic 2 sem var fínasta skemmtun😉

Laugardaginn 3. október var komið að sumarbústaðaferðinni með Heiði og Valdísi.. Við lögðum af stað um hádegið í grenjandi rigningu og roki,  komum við í Mathöllinni í Hveragerði og fengum okkur að borða. Síðan komum við í Bónus til að kaupa smá vistir og vorum komnar í bústaðinn um kaffileytið.. Veðrið var leiðinlegt, blautt, kalt og vindasamt svo við tókum því bara rólega innandyra, spiluðum, fengum okkur snarl og búbblu og föndruðum jólakort fram eftir degi😄

Elduðum  tortillur um níuleytið, héldum svo áfram að spila og kjafta og fórum svo að sofa um eitt leytið..  Vöknuðum um 11 leytið daginn eftir, fengum okkur morgunmat, tókum til og vorum komnar í bæinn um kaffileytið. Áttum góða og skemmtilega samverustund þessa helgi..😊

Laugardaginn 17. október var haustpartý hjá kórnum. Þar var haldið í sal hér í bænum, við mættum klukkan 19:00, það var Pálinuboð og allir komu með eitthvað á matborðið.. Við vorum c.a 25 manns, hlógum mikið, dönsuðum, sungum, spjölluðum, borðuðum og áttum góða stund saman og það var mikið fjör og stuð í mannskapnum, sem fór svo að týnast heim um miðnætti😀..

Ég var í vetrarfríi 22. -27. okt og fór m.a. í klippingu, Costcoferð, skipti um dekk og strákarnir komu í heimsókn😃. Var að vinna í frístundinni 22. okt frá 10:00-16:00 m.a.við tiltekt og á starfsmannafundi og eftir vinnu fórum við í spennandi spurningakeppni þar sem liðið mitt var í 2. sæti.. Var svo komin heim um 18:00... 

Fór  í matarboð til mömmu í gær, fínasta lambalæri og meðlæti😉

Jamm, svona er nú staðan í sveitinni og það er nóg framundan næstu vikur, m.a. leikhús, 3 jólahlaðborð, hittingur hjá gamla kórnum og svo er staðfestur fyrsti jólasöngur hjá kórnum, 29. nóv  í Ikea...

Þangað til næst.. Sandra lata í helgarfríi...