Saturday, September 12, 2026

Þá

 er rútínan komin í gang aftur. Ég er núna í 1. bekk, flottur 45 barna bekkur, ásamt öðrum stuðningsfulltrúa og 4 umsjónar og aðstoðarkennurum.. Ég er líka í frístundinni 3 daga í viku. Það var orðin fullmannað af starfsfólki bæði í skólanum og frístund þegar starfið hófst í haust og það er mjög gott og frekar óvenjulegt að það hafist því oft hefur vantað fólk á þessum tíma.sérstaklega í frístund og því gátum við tekið strax við öllum rúmlega 140 börnunum í 1.- 4. bekk sem áttu pláss. Það var líka lítið um mannabreytingar sem er líka jákvætt. Já, mér líst vel á þennan vetur, eins og svosem oft áður..😀

Kórinn er líka byrjaður og við erum að æfa nýtt og gamalt prógramm, tökum m.a. nokkur lög eftir Magga Eríksson í vetur og heiðrum minningu hans.. Ég er búin að vera 4 ár í stjórninni með flottu fólki en var orðin pínu þreytt á stjórnarsetu og sagði mig því úr stjórn í haust, fór á minn síðasta fund með þeim 3. sept og það kom önnur í minn stað 😉

Bæði í skólanum og kórnum tíðkast að gefa fólki gjafir þegar það eru tugaafmæli og fékk ég peningagjöf frá skólanum um daginn og fæ svo gjöf frá kórnum bráðlega..

Síðustu dagana í sumarfríinu notaði ég m.a. til að dytta að bílnum fór með hann í skoðun og smurningu, fór í búðarráp og klippingu.. Hitti vinkonur mínar Heiði og Magdalenu 29. ágúst, við fórum í mathöllina í Smáralind, fengum okkur að borða og fórum svo í Smárabíó að sjá bíómyndina Spa weekend..😊

Mikið að gera í næstu viku, klipping, vinna, kóræfing, starfsmannafundur í frístund eftir vinnu frá c.a. 17:00-19:00 á fimmtudaginn og út að borða og bíóferð með saumó á laugardaginn..😋

Gunnar okkar í byrjaður í Versló og hann er mjög ánægður þar sem er frábært, námið er skemmtilegt, hann er búinn að eignast eitthvað af nýjum vinum og mikið að gera hjá honum í félagslífinu og fótboltanum og Birgir okkar er líka vinamargur, gengur vel í skólanu  byrjaður að æfa fótbolta og líkar það vel😀 

Jamm svona gengur lífið, allt í rólegheitum og eitthvað af viðburðum framundan hjá mér, m.a. sumarbústaðaferð með vinkonum, leikhús og kórpartý...

Nóg í bili,, Sandra í helgafríi..