Gott
að vera komin í sumarfrí:-)
Hitti Heiði vinkonu þann 17. maí á kaffihúsi, áttum fína stund saman:-)
Gunnar og Birgir komu í næturpössun föstudagkvöldið 1. júní á meðan Jói fór í afmæli til vinar síns:-)
Birgir var að gista í fyrsta skipti, en það gekk allt að óskum, tók dálitla stund að lesa bækur og spjalla og svo sofnaði hann enda duglegur og flottur strákur:-)
Gunnar fékk að vaka lengur og horfa á sjónvarpið, síðan las ég fyrir hann, það er fastur liður þegar hann gistir að ég lesi sögu og svo fór hann að sofa, stóri og flotti drengurinn:-)
Mánudaginn 4. júní fórum við með allt miðstigið (5. 6. 7.) bekkur í ratleik í Elliðaárdalnum. Vorum þar frá c.a. 9:00- 13:00 og fengum sem betur fer gott veður, sól og lítinn vind:-)
Fórum í þrautir og leiki, grilluðum pylsur og höfðum gaman úti í góða veðrinu:-)
Síðasti vinnudagurinn hjá mér þessa önnina var fimmtudagurinn 7. júní...
Laugardaginn 9. júní fórum ég, Jói og Gunni á bíómyndina um Han Solo, ágætis ræma þar á ferð:-)
Fyrsta vikan í sumarfríinu fór í afslöppun, sjónvarpsgláp, heimsóknir til mömmu, heimsóknir til Jóa og strákanna, tannlæknatíma, klippingu, búðarráp og gönguferðir um hverfið, hef ekki komist í fjallgöngu ennþá en kemst vonandi í sumar ef veður leyfir:-)
Í gær fór ég til mömmu og kíkti svo í Ásgarðinn. Jói fór og náði í Gunnar á íþróttanámskeiðið sem er í hverfinu en ég fór og náði í Birgi á leikskólann sem er rétt hjá Jóa. Það var skemmtileg upplifun, gaman að sjá hann með krökkunum úti að leika sér í góða veðrinu, (já við fengum sól í gær) og svo löbbuðum við heim í pabbahús:-)
Gunnar og Jói komu rétt á eftir, ég stoppaði í kaffi og fór svo heim...
Í dag er stóratburður hjá íslensku þjóðinni, allt samfélagið á hliðinni, fólk frestar giftingum og jarðarförum og einhverjar búðir eru lokaðar, fólk er klikk:-)
En íslenska karlalandsliðið er semsagt að spila í fyrsta skipti í HM í fótbolta sem er bara frábært, fyrsti leikurinn er á eftir og ég segi bara áfram Ísland:-)
Næstkomandi fimmtudagskvöld ætla ég að taka þátt í miðnæturhlaupi Suzuki sem fer fram í Laugardalnum, klukkan 21:20. Fer 5 km sniglaskokk þetta árið. Hef farið einu sinni áður í þetta hlaup og tilvalið til að fara aftur núna þar sem ég þarf ekki að vakna snemma daginn eftir:-)
Á föstudaginn ætla ég svo að hitta Heiði vinkonu um eittleytið og við ætlum á kaffihús og göngferð eða bæjarrölt ef veður leyfir:-)
Já, svona er nú lífið í sveitinni, rólegheit og sumarfrí...
<< Home