Góðan
daginn og gleðilegt nýtt ár..😃
Þá er rútínan að byrja aftur eftir jólafrí, fyrsta vinnuvikan búin sem gekk ágætlega, ég fór á kórstjórnarfund síðasta miðvikudag, margt sem þurfti að ræða og ákveða og svo er fyrsta kóræfingin á nýju ári nú á miðvikudaginn😉
Jólahátíðin var frekar róleg og góð þetta árið, við vorum öll hér saman í Mosó á aðfangadag, hamborgarahryggur og meðlæti, pakkafjör, hlátur og notalegheit.😘. Ég fékk fínar gjafir, bækur: gjafakort, sokka, vettlinga, konfektkassa, sápu, krem, pening og veski..
Á jóladag fórum ég og Jói í mat til mömmu, hangikjöt og meðlæti.. og Jói kom til okkar í mat lambahryggur og meðlæti 28. des.
Þriðjudaginn 30. des fór ég í jarðarför hjá Unni frænku sem varð 95 ára, hún er systir Kollýar ömmu og þar með eru allir í fjölskyldunni af þeirra kynslóð búnir að kveðja þetta jarðlíf.. Þetta var þriðja jarðarförin á árinu, fór 2. jan 2025 í jarðarför hjá móðir Elínar vinkonu minnar, svo var Hanna kvödd 15. júli og svo Unnur 30. des þannig að ég byrjaði og endaði árið 2025 á jarðarförum, jamm svona er lífið..
Á gamlárskvöld vorum við Mosóbúarnir hér í rólegheitum, fengum okkur hangiket, horfðum á skaupið og flugeldana og vöktum aðeins frameftir. og svo var 1. jan alger letidagur..
Laugardaginn 3. jan var svo jólaboð hjá fjölskyldunni sem að þessu sinni var haldið hjá Védísi frænku.. Þetta var fínasta boð, það voru 30-40 manns enda komust flestir í þetta sinn, fengum hangiket og meðlæti og ís í eftirrétt..😋
Já, nóg í bili, eigið góða viku og hafið það gott..
