Gunnar
okkar varð 15 ára😍 þann 11. febrúar. Það var haldið upp á afmælið með smá kökuveislu í Ásgarðinum 15. febrúar þar sem ég, mamma, Gunni, Jói, Birgir og Gunnar voru samankomin..
Föstudaginn 14. febrúar hitti ég vinkonar mínar þær Heiði, Valdísi og Magdalenu í Kringlunni. Við fengum okkur að borða á Finnson og fórum svo að sjá nýjustu og síðustu myndina um Bridget Jones, skemmtileg mynd sem ég mæli með😄.25. janúar fór ég til Heiðar, við pöntuðum okkur pizzu, spjölluðum saman og horfðum á grínmynd:-)
Ég var í vetrarfríi í skólanum 24. og 25. febrúar, fór í klippingu 24. feb en þurfti að vinna aðeins í frístundinni þar sem það var starfsdagur þar 25. febrúar, tiltekt, fræðsla og fundir..
Rútínan hjá mér í fullum gangi, vinna, sofa, borða, kóræfingar og kórstjórnarfundir, sjónvarpsgláp og kíkt í kaffi til múttu..
En það er nóg framundan í mars, m.a. leikhúsferð á morgun, æfingabúðir og árshátíðir....
Nóg í bili.. eigið góða daga og farið vel með ykkur..
Sandra lataskata í helgarfríi:-)
<< Home