jæja
þá er rútínan byrjuð aftur sem er alveg ágætt.. Ég mætti í vinnuna 15. ágúst og við tóku skipulagsdagar með ýmsum verkefnum og undirbúningi, m.a. að ljósrita, plasta, færa húsgögn, flokka, telja og merkja stílabækur og námsgögn ásamt því að vera á námskeiðum, fræðslu og allskonar fundum og á einum starfsmannafundinum bauð ég mig fram í skólaráð þar sem enginn annar bauð sig fram😉. Ég er líka að vinna í frístundinni þrjá daga í viku eins og áður..
Kennslan og frístundaheimilið hófust svo 24. ágúst.
Nemendum í skólanum hefur fjölgað þónokkuð og eru þeir orðnir um 410 talsins, þar af rétt rúmlega 170 á yngsta stigi (1.-4. bekkur) og þurfum við því að tvískipta matartímanum í salnum sem gengur ágætlega..
Ég er í 2. bekk og fylgi því krökkunum mínum áfram og er sátt með það, það eru tveir umsjónarkennarar og þrír stuðningsfulltrúar með 45 börn.😊
Kóræfingarnar byrjuðu svo í liðinni viku og það komu 4-5 nýjir meðlimir sem er hið besta mál😃 og líst mér vel á lagalistann og veturinn...
Laugardaginn 9. ágúst hitti ég Heiði vinkonu í Egilshöll, við borðuðum fyrst á Shake and pizza og fórum svo á grínmyndina Naked gun sem var ágætis afþreying 😆
Þriðjudaginn 12. ágúst fórum ég og mamma í Kringlubíó á grínmyndina Freakier Friday. Hún var nú frekar léleg og í hlénu þá fórum við bara og fengum okkur að borða í Kringlunni😋.
Laugardaginn 16. ágúst kíkti ég í 50 ára afmælið hennar Heiðar sem tókst vel.
Laugardaginn 30. ágúst fórum ég, Valdís og Heiður í bústaðinn. Við lögðum af stað um hádegið í frábæru veðri, komum við í búð og keyptum vistir, stoppuðum svo í Mathöllinni í Hveragerði og fengum okkur í gogginn og vorum komnar á áfangastað um kaffileytið.. Komum okkur fyrir, fengum okkur snarl og í glas, tókum því rólega, spiluðum borðspil, hlógum mikið og spjölluðum, elduðum kvöldmat um níuleytið, fengum meira snakk, nammi og drykki og fórum svo í rúmið um tvöleytið.. Vöknuðum svo fyrir hádegi, borðuðum snarl, tókum til og vorum komnar í bæinn um kaffileytið í geggjuðu veðri, hita og sól. Yndisleg og skemmtileg samverustund 😎
Föstudaginn 5. sept vorum við að vinna til 14:00 og svo tók við haustferðin með samstarfsfélögum í skólanum. Við hittumst í salnum um þrjúleytið, fórum í lítinn leik, vorum sett í lið og svo fóru allir upp í Elliðaárdal þar sem tók við snarl og drykkir og fórum svo í ratleik um dalinn þar sem liðin áttu að leysa ýmsar þrautir.. Að leik loknum keyrðum við til aðstoðarskólastjórans þar sem tók við partý, matur og úrslit úr leiknum.. Fór svo heim um 9 leytið, glöð og sátt með mjög skemmtilega samverustund í góðum félagsskap..😀
Jamm, læt þetta nægja í bili.. farið vel með ykkur og eigið góða viku..
