Er
núna að jafna mig eftir tannrótartöku sem ég fór í síðastliðin fimmtudag. Það gekk allt vel og sárið grær vel, bara leiðindaverkir og æðasláttur í tönnunum en það lagast þegar ég læt taka saumana um miðja næstu viku..
Á afmælisdaginn minn 14. júlí var mjög gott veður, glampandi sól, 20 stiga hiti og logn😎. Ég, Jói og mamma fórum á kaffihús í tilefni dagsins, og svo fórum við Gunni að fá okkur ís í hitanum, fínasti afmælisdagur og góð samverustund með fólkinu mínu😀
Daginn eftir fórum, ég, mamma og Jói í jarðarför hjá Hönnu sem var mágkona Jóa afa.. Það var mikið af fjölskyldumeðlimum í jarðarförinni og nokkrir komu frá Patró og Barðaströnd og svo annarsstaðar af landinu. Jarðarförin var í Háteigskirkju og erfidrykkjan í safnaðarheimilinu en Hanna verður jörðuð fyrir vestan.. Hanna og Fúsi(bróðir afa) bjuggu á Patró og áttu sumarbústað í Litluhlíð svo það var mikill samgangur á milli á árum áður..
Miðvikudaginn 16. júlí átti Birgir okkar 10 ára afmæli😍. Við fjölskyldan hittumst aðeins í Ásgarðinum þar sem prinsinn fékk pakka
og svo fórum ég, Gunni, mamma, Jói, Gunnar og Birgir út að borða á Sushi social þar sem var í boði sushi, nauta og lamba steikur og meðlæti.. Birgir fékk svo afmælisköku í boði hússins og var ánægður með hana. Við áttum fínustu samverustund þetta kvöld og gaman að geta haldið upp á afmæli Birgis á sjálfan afmælisdaginn, enda var hann glaður með þetta allt saman😃
Jói og strákarnir komu hingað í sunnudagssteik 20. júlí,lambalæri og tilheyrandi og áttum við skemmtilega kvöldstund..😉
Miðvikudaginn 23. júlí fór ég í klippingu fyrir hádegi, kíkti svo aðeins í Costco og keypti smávegis og svo fór ég heim til Heiðar vinkonu minnar um kvöldið þar sem við fengum okkur pizzu, skiptumst á afmælisgjöfum, horfðum á bíómynd og áttum góða samverustund😀
Jamm, dásamlegt að vera sumarfríi, sofa út, vaka langt frameftir, lesa bækur, fara í sund, gönguferðir og ræktina, sitja í sólbaði úti á svölum, fara í klippingu og til tannsa, glápa á TV, fara í heimsóknir, út að borða og í bíó, hvíla líkama og sál og slappa af😏
Nóg í bili.. Sandra lata í sumarfríi...

