Sunday, April 12, 2026

Í dag

 á ég 36 ára fermingarafmæli😊

Kollý amma hefði orðið 90 ára 26. janúar og af því tilefni komum við afkomendur hennar saman og fóru út að borða á veitingastaðum Rif í Hafnarfirði.

Laugardaginn 7. febrúar fór ég á tónleika þar sem Birgir okkar spilaði eitt lag á píanó og gekk það svona ljómandi vel hjá honum😍 

Gunnar okkar varð 16 ára þann 11. febrúar og var haldið upp á það með matarboði hjá Jóa og strákunum 😀

 

 

Laugardaginn 14. febrúar var Þorrapartý hjá kórnum í sal hér í Mosó, hver og einn kom með mat og drykk að eigin vali fyrir sig og svo voru leikir, söngur, dans, gleði og gaman fram eftir kveldi😃


 Það var kærkomið að komast í páskafrí, ég fór m.a.í klippingu og í búðarferð í Costco og Kringluna. Á föstudaginn langa fórum ég og Jói í mat til mömmu, lambalæri og tilheyrandi og á páskadag komu Jói, Gunnar og Birgir í mat hingað, lambalæri og meðlæti😊

Ég átti kózýkvöld með Heiði vinkonu 28. mars, pizza og vidjógláp..

Í gær var langur æfingadagur hjá kórnum, vorum á æfingu frá 09:00-15:00 og gekk það vel..

Gunni á afmæli í dag og af því tilefni ætlum við fjölskyldan að fara út að borða í kvöld  á veitingastaðum Aski😀 

Nóg í bili, eigið góða viku viku og farið vel með ykkur..