nú
er ég aðeins byrjuð að fara aftur á viðburði og hittinga eftir samkomubannið.
Síðustu helgi fórum ég, Gunni, Jói, Gunnar og Birgir á sýninguna Fly over Iceland.
Það var mikil upplifun að "fljúga" yfir Ísland, upp á fjöll og niður í dali, yfir sjó og upp í himininn og lenda í miðri flugeldasýningu og mæli ég með þessari sýningu:-)
Við vorum öll að fara í fyrsta skipti og höfðu allir gaman af þessari upplifun:-)
Eftir flugið komu strákarnir með okkur í Mosó á meðan Jói fór í ræktina og þegar hann kom til baka fórum við að borða á Barion sem er veitingastaður hér í Mosanum...
Áttum saman góðan dag:-)
Seinnipartinn á miðvikudeginum hitt ég kórfélagana aftur eftir 2 og 1/2 mánaða hlé þar sem við komum saman til að syngja fyrir eldri borgara á elli- og hjúkrunarheimilinu hér í Mosó...
Það gekk ágætlega og eftir tónleika fórum við að borða á veitingastaðnum BLIK Bistro&Grill í Mosó, það var gaman að hitta þau aftur og áttum við skemmtilega stund saman:-)
Í gær fór ég svo með vinnufélögum í keilu og pizzu í Egilshöll, skemmtileg samverustund og gaman að gera eitthvað saman utan vinnu og kjánast og hlæja og fá smá útrás eftir erfiðan og skrýtin vetur:-)
Í dag fór ég í Smáralind og keypti smávegis af fatnaði, kjóla, sokkabuxur, náttkjól og peysu:-)
Kíkti svo aðeins í Costo og keypti svolítið af dóti sem gott er að eiga, m.a. kaffi, sturtusápu, augndropa, hreinsiklúta og fann líka strigaskó og náttbuxur sem fóru með í körfuna..
Endaði svo bæjarferðina á að kíkja í kaffi til múttu:-)
Nú er veiran á undanhaldi í bili sem eru góðar fréttir, í samfélaginu eru 2 virk smit og eru þeir einstaklingar í einangrun.
Allir sem koma til landsins þurfa að fara í 2 vikna sóttkví og því eru tölur um sóttkví breytilegar eftir dögum og ekki endilega í samræmi við fjölda smita, t.d. fjölgaði mikið fólki í sóttkví þegar Norræna kom til landsins en lækkuðu svo nokkrum dögum seinna...
Íslensk erfðagreining er byrjuð að gera mótefnamælingar í samfélaginu sem á að kanna hvort og hve margir hafa myndað mótefni gegn veirunni.
Í úrtakinu eru bæði einstaklingar sem sýndi engin einkenni en voru veikir jafnvel án þess að vita af því og einstaklingar sem veiktust illa en er batnað og samkvæmt þeim niðurstöðum sem eru komnar kemur í ljós að c.a. 1 % þjóðarinnar hefur myndað mótefni...
og að fleiri hafa smitast en vitað var um,þ.e. tölur um staðfest smit...
En rannsóknin og mælingarnar eru ennþá í gangi...
Nýjustu tölur af covid.is eru eftirfarandi:
Staðfest smit 1806, batnað 1794, 2 í einangrun, 0 á spítala, 10 látnir, 1043 í stóttkví, 21.092 hafa lokið sóttkví og 62.768 sýni hafa verið tekin..
Nú fer þessu skrýtna skólaári að ljúka, skólaslitin voru í gær, næsta vika fer í frágang, undirbúning fyrir næsta ár og tiltekt og svo er ég komin í sumarfrí:-)
jamm svona er nú lífið í sveitinni...
þangað til næst, eigið góða daga og njótið sólarinnar...
<< Home