Sumarfrí
jamm, nú líður að lokum sumarfrísins sem hefur verið ágætt, gott veður lengst af og hef ég gert eitt og annað undanfarnar vikur og átt góðar samverustundir með fjölskyldunni, vinkonu minni, og sjálfri mér:-)
Mánudaginn 1. júlí skruppum við Gunni í smá bíltúr út fyrir bæinn, fórum í gönguferð og skoðuðum rústir nálægt Lækjarbotnum:-)
5. júlí hittumst við Heiður vinkona á kaffi París niðri í bæ í sól og sumaryl, fengum okkur að borða, spjölluðum heilmikið og gaf hún mér flott hálsmen í afmælisgjöf:-)
Vikuna 12.-19.júlí fórum við fjölskyldan í sumarbústað á Giljareitum rétt hjá Laugarvatni:-)
Við Gunni fórum föstudaginn 12. júlí, keyptum í matinn á leiðinni og komum á staðinn seinnipartinn í sól og fínu veðri, gengum frá öllum matnum og dótinu, fórum í gönguferð og kíktum svo í heita pottinn:-)
Jói, Gunnar og Birgir komu eftir hádegið á laugardeginum, það var grillað, farið í pottinn og vatnsbyssustríð:-)
Á sunnudeginum fórum við í bíltúr, fengum okkur kaffi og köku á Kaffi Krús á Selfossi í tilefni af því að ég átti afmæli, keyrðum síðan í áttina til Skálholts, stoppuðum á leikvelli á leiðinni þar sem strákarnir fengu smá hreyfingu, skoðum svo Skálholt og fórum svo aftur í bústaðinn þar sem við grilluðum um kvöldið:-)
Ég fékk fullt af kveðjum, skilaboðum og símtölum í tilefni dagsins og fékk líka pening í afmælisgjöf og þakka kærlega fyrir það:-)
Á mánudagsmorgunn fóru Jói, Gunni og strákarnir á fótboltavöll á Laugarvatni en ég tók aðeins til á meðan..
Jói fór svo í bæinn eftir hádegið þar sem hann þurfti að útrétta ýmislegt fyrir afmælið hans Birgis sem var daginn eftir..
en ég, Gunni, Gunnar og Birgir fórum í dýragarðinn Slakka sem er nálægt Skálholti..
Slakki er flottur og skemmtilegur staður sem ég mæli með, þar er hægt að skoða dýrin, fara í leiktæki, minigolf og fá sér kaffi:-)
Drengirnir skemmtu sér vel, klöppuðu kisum, fóru í leiktækin, Gunnar hélt á páfagauk og við prófuðum öll minigolfið:-)
Um kvöldið fórum við Birgir í smá gönguferð í grenjandi rigningu í skóginn sem var rétt hjá húsinu, komum við á leikvelli með sandkassa og rólum sem var í leiðinni og enduðum svo í pottinum með Gunnari og Gunna:-)
Jói og Katrín komu svo um hádegið á þriðjudeginum með pakka, köku og fleira dót og það var slegið upp 4 ára afmælisveislu fyrir Birgi:-)
Birgir og Gunnar opnuðu nokkra pakka og stuttu seinna komu Björn, Alexander og Ársól í veisluna, við fengum okkur kökur og kaffi, gos og fleira góðgæti, og svo tók við mikið stuð, eðlilega þar sem fjögur börn 4.- 10. ára voru á staðnum, vatnsbyssustríð, heitapottspartý, opna fleiri pakka, leika með dótið og blöðrunar:-)
Um kvöldið voru grillaðar steikur og meðlæti og eftir matinn fóru Björn og Ársól í bæinn en Alexander fékk að gista og fannst stóru strákunum það spennandi:-)
Um hádegið á miðvikudeginum fóru Jói, Katrín og strákarnir í bæinn en við Gunni vorum eftir til að ganga frá og taka til í bústaðnum og fórum við svo í bæinn um hádegið á fimmtudeginum:-)
Jamm, þetta var ágætis tilbreyting að fara aðeins út úr bænum, en við vorum frekar óheppinn með veðrið akkúrat þessa viku, rigning og hitaskúrir, skýjað, en stytti upp á milli, sólin lét stundum sjá sig og ekki mikill vindur.. en hefði verið gaman að geta verið meira úti á þessum stóra palli en við fórum mikið í pottinn í staðinn, horfðum á vídejó og fórum í bíltúra:-)
Mánudaginn 22. júlí komu Valli og Bubbi að vestan og fórum við öll á Grillhúsið um kvöldið.
Að morgni 24. júli flaug Bubbi svo til Svíþjóðar og Valli fór til Flateyrar.
25. júlí komu Gunnar og Birgir í gistingu og áttum við fína stund saman:-)
26. júlí kíkti ég til Heiðar, við fengum okkur pizzu, gláptum á mynd, kjöftuðum og ég gaf henni afmælisgjöf:-)
29. júli förum við mamma í bíó á myndina Yesterday, mæli með henni, fjallar um tónlistarmann sem er hrifinn af Bítlalögum og sem lendir í því að verða fyrir strætó um leið og rafmagnsleysi verður um alla jörðina í stuttan tíma. Þegar hann vaknar á sjúkrahúsinu kemst hann að því að engin kannast við Bítlana, Coca Cola, Harry Potter og fleira , og fer hann því að flytja bítlalög og verður heimsfrægur:-)
Í gær fórum við mamma í smá bíltúr í sól og sumaryl, keyrðum Þingvallaleið og gegnum Grafninginn og Grímsnes og enduðum á Selfossi á kaffi Krús, fengum okkur kaffi og köku, komum aðeins við í Hveragerði og fórum Hellisheiðina heim, fínasti bíltúr sem tók c.a. 4 tíma:-)
Já, svona er nú fríið, hef líka farið í gönguferðir og til tannsa, kíkt á útsölur, hangið í sófanum og glápt á þætti og farið með bílinn í skoðun...
Nóg í bili, farið varlega í umferðinni og eigið góða viku...
<< Home