áramót
þá er árið 2012 að kveðja..
Fyrir mig var árið 2012 einkum ár heilsueflingar í sambandi við magann, ristilinn og augun. Ég tók til í mataræðinu, keypti mér safapressu til að útbúa grænmetissafa sem hefur hjálpað mér mjög mikið, tók út ýmsar matartegundir, setti nýjar inn í staðinn, fór í ristilspeglun og laseraugnaðgerð og losnaði við gleraugun:-)
Ég fór í fyrsta skipti til Svíþjóðar í vor í náms- og skemmtiferð með vinnunni, frábær ferð sem skilur eftir margar minningar:-)
En það var margt fleira sem ég gerði á árinu og hér er smá samantekt frá 2012:
Janúar, febrúar og mars: Jói, Lára og Gunnar komu í mat á nýjársdag, fengum lambalæri og tilheyrandi, ís, kaffi og konfekt og áttum saman góða kvöldstund. Fór á kyrjanir og búddistafundi, í heimsóknir og í bíó, passaði Gunnar Aðalstein, fór á útsölur, átti skemmtileg saumakvölds, vídjó- spjall -og flisskvöld með vinkonum mínum og átti notalegar og skemmtilegar stundir með fjölskyldu og vinum. Gunnar Aðalsteinn varð 2 ára í febrúar og það var heilmikil afmælisveisla hjá honum:-)
Ég fór út að skokka, í gönguferðir og leikfimi, fór á djammið, í bæinn og á kaffihús, undirbjó utanlandsferð með vinnunni, með kökubasar, lakkrís, bökunarpappírs og uppskriftabókarsölu og margt fleira.
Ég tók ákvörðun um að að prófa mig áfram í grænmetis og hráfæði, keypti mér matreiðslubækur, blandara og safapressu, bjó til ávaxta og grænmetisdrykki, byrjaði að æfa mig að baka heilsubrauð og kökur, tók út rjóma, hveiti, sykur, ger, lyftiduft, flest allt kjöt, kex og tilbúið brauð. Mataræðið breyttist og ég fór yfir í allskonar grænmetisfæði og hráfæði, s.s. grænmetisbuff og súpur, ávexti, fisk, döðlur, fræ, hnetur, möndlur, bauna og byggbuff, skyr, smjör, ost, hrökkkex og möndlumjólk. Ég prófaði að baka heilsubrauð og kökur og þær uppskriftir innihéldu m.a. hveitiklíð, spelt, fræ, hnetur, döðlur, banana, ávexti, sykurlausa sultu, suðusúkkulaði, ab-mjólk, maísmjöl, vatn, vínsteinslyftiduft, vanillusykur og margt fleira;-)
Apríl og maí: Átti margar góðar stundir með vinnufélögum, vinum og ættingjum. Það var áframhaldandi undirbúningur fyrir Svíþjóðarferðina m.a. héldum við konukvöld, með mat, happdrætti, söng og skemmtiatriðum, ég fór í fínustu óvissuferð með Blásaladömunum, fór í fræðandi, spennandi, fjölbreytta og skemmtilega utanlandsferð með vinnufélögum til Svíþjóðar síðustu dagana í maí, vorum í Stokkhólmi þegar Svíþjóð vann Júróvision, mikil upplifun:-)
Ég fór í saumaklúbb hjá nokkrum núverandi og fyrrverandi samstarfskonum í Blásölum, skemmtileg samverustund það kvöld:-)
Mánudaginn 7. maí átti Jói bróðir þrítugsafmæli og var haldið upp á það í faðmi fjölskyldu og vina:-)
Við fórum út að borða um kvöldið á veitingahúsinu Roadhouse 10 manna hópur, fengum gott að borða og svo var haldið í Hæðargarðinn þar sem tók við kökuát, kaffidrykkja, fleiri gestir og pakkaopnun..
Ég hélt áfram tilraunum í heilsufæði og bakaði m.a. heilsumuffins og gulrótarheilsuköku fyrir samstarfskonurnar:-)
ég fór í klippingu, til læknis, fór með bílinn í skoðun, fór í bíó, í leikfimi, búðarráp og margt fleira...
Júní og júlí: Gunnar Aðalsteinn kom í heimsókn og gistingu fyrstu helgina í júní:-)
Það var margt um að vera hjá mér í sól og sumaryl, s.s. kaffihúsahittingur með stelpunum, skemmtilegt frænkuboð þar sem ég hitti frænkur sem ég hef ekki séð í mörg ár, gönguferðir og sniglaskokk, stelpukvöld, grillpartý hjá Blásalapæjum, pössun, fór 5 km í Kvennahlaupinu, Þorsteinn Þorri frændi minn útskrifaðist úr Háskólanum og bauð okkur í flotta veislu, ég fór með vinnunni á sýningu hjá Brúðubílnum og fór tvisvar sinnum með nemendahópa í Grasagarðinn, kíkti á kyrjanir, fundi og spókaði mig á Laugaveginum:-)
Ég fór í sumarfrí fyrstu vikuna í júlí og byrjaði fríið á því að fasta og laxera fyrir ristilspeglun sem gekk vel og ekkert athugvert fannst sem betur fer;-)
Ég, mamma og GunnarAðalsteinn áttum saman góða og flotta samverustund einn sumardag í júlí þar sem við fórum út að borða og á sýningu hjá Brúðubílnum:-)
Ég keypti mér nýrri bíl, setti gamla bílinn minn á sölu og átti tvo bíla á tímabili, en svo seldist gamla góða græna eldingin mín stuttu seinna. Ég fór í sumarbústað með vinkonunum á afmælisdaginn minn, hélt upp á afmælið, gistum tvær nætur, gleði og glaumur þar við völd og hélt svo litla afmælisveislu fyrir fjölskylduna helgina á eftir. Fór í stutt ferðalög um nágrennið, t.d. á Þingvöll og Nesjavallaleið. Ég hitti tvær vinkonur mínar sem voru að kenna með mér í Víkurskóla forðum daga og litlu prinsana þeirra, fór í leikfimi og fór í gönguferðir úti í náttúrunni:-)
Og síðast en ekki síst fór ég í laseraðgerð sem heppnaðist mjög vel, engar augaverkanir og þvílíkur munur að vera laus við gleraugun í leik og starfi, og ekki síst í sniglaskokkinu:-)
Ágúst, september og október: Tók þátt í 10 km Reykjavíkurmaraþoni, fékk heimsókn frá Noregi, þegar pabbi, Helga og Sif kíktu í kaffi, fór í afmæli og saumaklúbba, byrjaði að vinna eftir fríið, kíkti á næturlífið, gekk á Úlfarsfell nýja leið sem var ekki eins skemmtileg og sú sem ég fer oftast.
Gunnar Aðalsteinn kom í pössun og gistingu síðustu helgina í september og við fórum í skemmtilega fjöruferð, byggðum sandkastala, teiknuðum í sandinn, hentum steinum í sjóinn og týndum kuðunga og skeljar;-)
Nóvember og desember: Mikið um að vera innan og utan vinnunar, t.d. fékk leikskólinn Grænfánann föstudaginn 2. nóv 2012 eftir mikla undirbúningsvinnu, flokkun og fræðslu og var það mikil hátíð hjá okkur og um kvöldið var fjörugt vinnustaðapartý ;-)
Fór með fjölskyldunni í bíó að sjá nýjustu James Bond myndina, stelpukvöld, djamm og dansiball, leynivinaleikur í vinnunni, jólamatarboð í vinnunni, búddistajólafundur, heimsóknir og gestir, keypti jólagjafir og sendi út til vina og ættingja, skrifaði jólakort, bakaði smákökur af og til allan desember, jólaboð, samverustundir með ættingjum, vinnufélögum og vinum, langt jólafrí, jólasveinaferðir, klipping, jólaball í leikskólanum, passaði Gunnar frænda, hékk í tölvunni, fór í leikfimi annan í jólum, fór og keypti jólagjafir milli jóla og nýárs, róleg jól og áramót. Leti, búðarráp, svefn, hanga á náttfötunum, mikið að borða, sjónvarpsgláp, fór að sjá Hobbitann, las nokkrar bækur og sitthvað fleira:-)
Óska öllum gleðilegs nýs árs og þakka kærlega fyrir árið 2012:-)
Vona að þið hafið það sem allra best og verið góð við ykkur sjálf og aðra:-)
Áramótakveðja
Sandra sem er að fara að horfa á skaupið...
<< Home