Gunni
átti afmæli 12. apríl og héldum við fjölskyldan upp á afmælið á veitingastaðum Aski😃
Laugardaginn 25. apríl var komið að vorferð kórsins, fórum að þessu sinni í ferðina fyrir vortónleikana þar sem það hentaði betur.. Við hittumst kl. 11:00 hjá KFC í Mosó, fórum þar í rútu og héldum af stað til Hveragerðis þar sem við fengum okkur pizzu á veitingastaðum Ölverk Pizza & Brewery😋
Þaðan keyrðum við í Villingaholt og stoppuðum á safninu/artgallerýinu; Tré og list hjá honum Óla í Forsæti.. Þetta er stórglæsilegt safn með mikið af tréútskurði/munum eftir Siggu á Grund og fleiri listamönnum ásamt annars konar listaverkum og hlutum, mæli með að þið kíkið þarna við.. Óli sýndi okkur safnið og spilaði á forláta orgel og við sungum 2-3 lög þarna..😊
Sunnudaginn 3. maí héldum við vortónleikana okkar í Hlégarði, þeir tókust með ágætum, fullur salur af fólki og mamma og Jói komu að horfa, takk fyrir það😉... Eftir tónleikana fórum við kórfélagarnir saman á veitingastaðinn Blikk og bistró hér í Mosó svona til að slútta vetrarstarfinu og kveðjast fyrir sumarfrí..😎
Laugardaginn 9. maí hittumst við Heiður vinkona í Egilshöll, fengum okkur pizzu og fórum á bíómyndina ;The Devil Wears Prada 2, ágætis ræma það..😉
Mánudaginn 11. maí var árlegi tiltektardagurinn hér í húsinu, við reyttum arfa og gróður, týndum rusl, sópuðum stéttina, þvoðum glugga og stigagang og margt fleira.. ágætis mæting og stemming..
Miðvikudaginn 20. mai fór ég á síðasta kórstjórnarfundinn á þessum vetri, margt sem þurfti að ræða, skipuleggja og gera upp árið..Svo á ég bara eftir að fara á einn undirbúningfund í haust fyrir aðalfundinn, því ég hef ákveðið að hætta í stjórninni í haust, hef verið 4 ár sem stjórnarformaður og það er komið gott í bili af kórstjórnarstörfum😌
Annars bara allt rólegt, hef farið í klippingu, kíkt í Costco, verið að vinna, farið til tannsa og eitthvað fleira og það styttist í sumarfríið..
Það er komin löng helgi sem er fínt og seinnipartinn í dag ætlum ég, Jói, Gunni, Birgir og Gunnar ætlum að kíkja á nýjustu Star Wars myndina..😊
Nóg í bili..eigið góða daga..






<< Home